Hörður Arnarson, fyrrverandi forstjóri Marel, hefur verið ráðinn forstjóri Sjóvár en eins og fram hefur komið hefur Þór Sigfússon óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu en mun fyrst um sinn vera nýjum forstjóra til ráðgjafar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skilanefnd Glitnis sem nú fer með rekstur Sjóvár.

Þar kemur fram að Skilanefnd Glitnis, stjórn Sjóvár og Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hafa á síðustu mánuðum unnið að endurskipulagningu félagsins og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á næstu dögum.

„Markmiðið með endurskipulagningunni er að tryggja hagsmuni viðskiptavina og hámarka verðmæti félagsins,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að gert er ráð fyrir að fjárfestingastarfsemi félagsins verði aðskilin frá vátryggingastarfsemi þess. Í því felst að nýtt félag verður stofnað um vátryggingarstarfsemina undir merkjum Sjóvár og hefur Fjármálaeftirlitinu verið send umsókn um starfsleyfi frá nýja félaginu.

„Þetta er mjög áhugavert verkefni,“ segir Hörður Arnarson, nýráðinn forstjóri í tilkynningunni.

„Sjóvá á sér langa og farsæla sögu og nú þegar fjárhagslegri endurskipulagningu er lokið er framtíð félagsins tryggð. Það er mér mikið tilhlökkunarefni að vinna með starfsmönnum að áframhaldandi framgangi félagsins á íslenskum vátryggingamarkaði.”