Höskuldur Ásgeirsson hefur gert samkomulag við félagið um að hann láti af störfum sem forstjóri Nýsis hf.

Höskuldur tók við starfi forstjóra þann 1. desember 2007 og hefur stýrt félaginu í gegnum miklar aðhalds- og hagræðingaraðgerðir í rekstri sem skilað hafa miklum árangri, ásamt því að leysa úr þeirri erfiðu stöðu sem uppi hefur verið hjá félaginu sökum lánsfjárkreppunnar segir í tilkynningu á heimasíðu félagsins. Sigfús Jónsson tekur við starfi forstjóra félagsins.