Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, var í dag kjörinn formaður stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) á aðalfundi þeirra sem fór fram í dag. Höskuldur tekur við af Birnu Einarsdóttir, bankastjóra Íslandsbanka, sem hefur gengt stöðu stjórnarformanns undanfarin tvö ár.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu SFF. Í nýrri stjórn samtakanna, sem kjörinn var í dag, sitja auk Höskuldar og Birnu þau Hermann Björnsson forstjóri Sjóvár, Kristín Pétursdóttir forstjóri Auðar Capital, Pétur Einarsson forstjóri Straums, Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS, Sigurður Atli Jónsson forstjóri MP banka, Sigurður Valgeirsson forstjóri TM og Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans.