Höskuldur Skúli Hallgrímsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík. Hann tekur við starfinu af Lilju Rögnvaldsdóttur þann 1. júlí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Höskuldur Skúli kom til starfa í útibúinu árið 2007 og hefur gegnt stöðu viðskiptastjóra fyrirtækja. Áður var hann fjármálastjóri Orkuveitu Húsavíkur. Höskuldur Skúli er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst en hann er að auki rafiðnaðarfræðingur og iðnrekstrarfræðingur frá Tækniháskóla Íslands.