Hörð viðbrögð eru við frumvarpi fjármálaráðherra um tímabundinn skatt á lífeyrissjóðina. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, telur brýnt að upplýst verði um heildarálögur á lífeyrissjóðina, sem hann segir orðnar æði miklar. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Sjóðirnir þurfi nú að inna af hendi greiðslur vegna t.d. umboðsmanns skuldara, Fjármálaeftirlitsins, fjársýsluskattsins, VIRK – starfsendurhæfingarsjóðs og vaxtaniðurgreiðslna.

Í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag segjast leiðtogar verkalýðshreyfingarinnar munu sækja rétt félaga sinna fyrir dómstólum verði ekki hætt við fyrirhuguð áform um að skattleggja hreina eign lífeyrissjóðanna til þess að standa straum af vaxtaniðurgreiðslum fyrir árin 2011 og 2012.