Hótel Holt er án efa eitt virðulegasta og glæsilegasta hótel landsins og hefur verið um árabil. Hótelbarinn og Gallery Restaurant njóta vinsælda gesta og fallega móttakan skipar mikinn sess á hótelinu því að herbergjunum ganga enn gamaldags lyklar.

Á hótelinu eru fjórar svítur. Í stóru svítunni hafa margir mætir gestir gist eins og Karl Gústaf Svíakonungur, tónlistarmaðurinn Eric Clapton og leikarinn Viggo Mortensen. Stóra svítan er 40 fermetrar.

Minni svítan, Junior svítan, er meira hugsuð fyrir brúðhjón. Þar geta þau setið úti á svölum og notið útsýnisins. Svítan er 28 fermetrar.

Á svítunum er hægt að loka af svefnsvæðið og stofuna. Espresso vél og baðkar er einnig að finna á svítunum. Nóttin kostar 50.400 krónur.