Hótel Örk í Hveragerði hlaut alþjóðleg verðlaun á World Golf Awards þar sem það var valið sigurvegari í flokknum „Besta golfhótel Íslands“ (e. Iceland's Best Golf Hotel).

Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti þetta árið en þau eru hluti af World Travel Awards sem veitt hafa verið í 21 ár. Hótel Örk hlaut einnig tilnefningu í flokknum „Besta golfhótel Evrópu“.

„Við hjá Hótel Örk erum stolt af þessum verðlaunum enda höfum við í gegnum tíðina lagt mikla áherslu á að bjóða kylfinga velkomna á Hótel Örk og æfa sig á 9 holu golfvellinum við hótelið áður en haldið er á þá fjölmörgu glæsilegu golfvelli sem eru í nágrenni Hótel Arkar á Suðurlandi,“ segir í tilkynningu.