Bændasamtökin segja að nú þegar Hótel Saga gangi nú í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu séu stjórnendur þess nauðbeygðir til að loka hótelinu frá 1. nóvember næstkomandi. Hótelið starfar í húsnæði í eigu samtakanna sem í daglegu tali er kölluð Bændahöllin.

Viðskiptablaðið sagði frá því í september að hótelið hefði lokað þremur fjórðu herbergja en félagið hefði nýtt sér greiðsluskjól til að halda rekstrinum gangandi en ekki stæði til að nýta sér lánaúrræði ríkisins. Þar með voru 60 af 236 herbergi félagsins enn opin þangað til nú.

Fjallað var ítarlega um stöðu hótela landsins í síðasta tölublaði Viðskiptablaðsins en þar kemur fram að fjórar stærstu keðjurnar hafa lokað 33 af 48 hótelum sínum vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins.

Samtökin segja að það liggi fyrir að hótelið hafi orðið fyrir gríðarlegum tekjusamdrætti vegna faraldursins og mikil óvissa sé um þróun rekstrarumhverfis fyrirtækja í ferðaþjónustu í nánustu framtíð.

Er nú svo komið að stjórnendur þess sjá sér ekki annan kost en að loka því, að minnsta kosti að sinni, þar sem ekki sér enn fyrir endann á faraldrinum og engin augljós merki eru um að straumur ferðamanna til Íslands muni aukast á næstu vikum og mánuðum.

Jafnframt er tekið fram á vef Bændasamtakanna að lokunin hafi ekki áhrif á aðra starfsemi í húsinu, þar á meðal verði starfsemi samtakanna, og annarra samtaka í landbúnaði, óbreytt.

„Síðustu sóttvarnaraðgerðir gera það að verkum að það er ekki lengur rekstrargrundvöllur til að halda starfseminni gangandi,“ segir Ingibjörg Ólafsdóttir hótelstjóri á Hótel Sögu.

„Hótel Saga er stórt hótel og það þarf að lágmarki 15 til 20 starfsmenn til að hald uppi allra nauðsynlegust þjónustu og tekjumöguleikar eins og staðan er í dag nánast engir.

Þannig að ákvörðunin um að loka er tekin af illri nauðsyn þrátt fyrir að í september hafi verið stefnt að því að hafa opið til áramóta eða þangað til að fundin hafi verið laus við endurskipulagningu rekstursins.“