Guðmundur Franz Jónasson og Ingileif Ingólfsdóttir hafa selt Hótel Voga til feðganna Jónasar Andrésar Þórs Jónssonar og Andrésar Más Jónassonar.

Andrés segir að feðgarnir kaupi hótelið vegna þess að þeir sjái stór tækifæri í hinum vaxandi ferðamannabransa. „Þetta er bara gullið tækifæri,“ segir Andrés.

Hann segir að nafni hótelsins verði breytt mjög fljótlega. Búið er að íhuga nýtt nafn, en ekki hefur verið gengið frá nafnabreytingunni.