Stefán Tryggvason á og rekur Hótel Natur ásamt konu sinni, Ingu Árnadóttur, rétt fyrir utan Akureyri. Hann segir skiljanlegt hjá stjórnvöldum að vilja skattleggja ferðaþjónustuna þar sem uppgangur er í greininni. Hinsvegar þurfi að vanda til verka og ekki að grípa til skyndilausna.

VB Sjónvarp heimsótti Stefán norður.