Forsvarsmenn House of Fraser verslanakeðjunnar, sem er í eigu Baugs Group, hafa ástæðu til þess að halda jólaskapinu eitthvað fram eftir ári eftir mikla aukningu í jólasölunni. Um leið hafa þeir skýrt frá áformum um enn frekari starfsemi með nýrri verslun í Belfast, sem verður fyrsta nýja verslunin í tvö ár.

Fimm vikna sala House of Fraser fram til 3. janúar síðastliðinn jókst um 2,4% miðað við sama tíma í fyrra.