Verslunarkeðjan House of Fraser sem er í eigu Baugs hefur opnað útibú í Belfast. Nýja verslunin er sú fyrsta sem keðjan opnar frá því að Baugur eignaðist HOF fyrir rúmu ári.

John King forstjóri House of Fraser naut aðstoðar ofurfyrirsætunnar Yasmin Le Bon sem er hið nýja andlits keðjunnar þegar hann opnaði verslunin formlega. Nýja HOF verslunin er Victoria-torg í Belfast.

Nánar verður sagt frá nýju versluninni í Viðskiptablaðinu á morgun.