House of Fraser hefur samþykkt 356 milljón punda ófromlegt kauptilboð frá Baugi, segir í frétt breska dagblaðsins The Daily Telegraph. Kauptilboðið samsvarar 48,5 milljörðum króna.

Í fréttinni segir að kauptilboðið sé í kringum 150 pens á hlut, en það er verð sem stjórnendur og hluthafar House of Fraser gáfu til kynna að væri ásættanlegt.

Daily Telegraph segir áreiðanleikakönnun byrjaða og að formlegt kauptilboð muni að öllum líkindum vera gert í ágúst ef House of Fraser stenst væntingar.