Á föstudaginn var, 15. maí, lauk þriggja vikna námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækja sem flestir nemendur Háskólans í Reykjavík sóttu í lok vorannar á fyrsta ári. 112 hópar nemenda, sem koma úr öllum deildum þróuðu jafnmargar nýsköpunarhugmyndir. Fyrirlestrar námskeiðsins er nú aðgengilegir öllum á vef skólans .

Námsefnið fjallar um hvernig þróa á hugmynd að nýrri vöru eða þjónustu, gera fjárhagsáætlun, fara í gegnum hönnunarsprett, prófa vöruna og fjármagna hana. Á síðunni er hægt að horfa á kennslustundir og viðtöl við fremstu frumkvöðla landsins. Þar er einnig bent á fjölbreytt fræðsluefni á netinu sem nýtist frumkvöðlum.

Fremstu frumkvöðlar landsins með fyrirlestra.

Aðalleiðbeinandi námskeiðsins var Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull og stjórnandi. Hann býr yfir dýrmætri þekkingu og reynslu eftir störf í Kísildalnum í Kaliforníu til dæmis hjá Apple og Google. Með honum voru Hrefna S. Briem, sem hefur yfirumsjón með námskeiðinu og aðrir reynslumiklir leiðbeinendur.

Gestir Guðmundar í kennslustundum voru meðal annarra: Davíð Helgason, stofnandi Unity, Hilmar Veigar Pétursson, stofnandi CCP, Stefanía Ólafsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Avo, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Kara Connect, Georg Lúðvíksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Meniga og Jake Knapp, höfundur Sprint.

Verðlaunahugmyndir

Í lok námskeiðsins voru fjórar bestu hugmyndirnar valdar en þær þurfa að hafa verið útfærðar með góðri viðskiptaáætlun og notendaprófunum. Hópurinn í fyrsta sæti hlýtur að verðlaunum kr. 300.000.- sem nýta má til að þróa hugmyndina áfram, auk þess að hljóta Guðfinnuverðlaunin svokölluðu og verða fulltrúi HR í alþjóðlegri frumkvöðlakeppni háskólanema.

1. Sæti: App fyrir læknismeðferð
Í fyrsta sæti árið 2020 var nemendahópurinn á bak við Healie, hugbúnað sem tekur saman mikilvæga þætti í sjúkdómsmeðferð og heldur t.d. utan um lyf, einkenni, mataræði, svefn, hreyfingu og lífsmörk. Hægt er að tengja hugbúnaðinn við snjalltæki eins og heilsuúr og fá þannig enn betri  raungögn.

2. sæti: Styttri skjátíma barna
Í öðru sæti var forritið Geisli fyrir snjalltæki og leikjatölvur þar sem foreldrar geta sett fram verkefni fyrir börnin sín hvort sem það eru heimilisstörf, heimaverkefni eða önnur verkefni. Geisli takmarkar virkni tækja þar til að barnið klárar verkefni dagsins og að launum fær það ákveðið magn af skjátíma til afþreyingar.

3. sæti: Betri endurvinnsluílát fyrir heimilin
Í þriðja sæti var hópurinn á bak við Gaia sem settu fram nýja lausn fyrir flokkun á heimilum. Hjá Gaia pantar viðskiptavinurinn fyrsta flokks endurvinnslutunnur eftir sínum þörfum sem passar fyrir heimilið, neyslu þess og rými til afnota. Hægt er að stækka „endurvinnsluhornið” í gegnum vef fyrirtækisins og bæta endurvinnslueiningum við þá tunnu sem er til fyrir.

4. sæti: Iðnvottuð NFC pilla á vinnuvélar sem má lesa með farsíma eða spjaldtölvu
Hópurinn í fjórða sæti þróaði hugmynd að UteamUP Horizon, forriti sem sameinar mikilvæga verkferla til að halda vélbúnaði í hámarks nýtingu, lágmarka bilanatíma og stuðla að fyrirbyggjandi viðhaldi. Það sem UteamUp bætir við önnur viðhaldsforrit er m.a. iðnvottuð NFC pilla sem er fest á vélina  og lesin af IOS eða Android með síma eða spjaldtölvu. Viðhaldsaðilar hafa þannig auðvelt aðgengi að margskonar upplýsingum um viðkomandi tæki, svo sem rafmagns- og varahlutateikningar, fyrirliggjandi viðhaldsbeiðnir, áætlað viðhald og lagerstöðu fyrir viðkomandi varahluti.

Frumkvöðlahópurinn Healie, Nýsköpun og stofnun fyrirtækja - HR
Frumkvöðlahópurinn Healie, Nýsköpun og stofnun fyrirtækja - HR

Mynd af sigurhópnum Healie, þegar tilkynnt var um úrslitin á netinu. Á myndinni eru: Andri Snær Sævarsson (efst til vinstri), Ásgeir Ingi Valtýsson (efst til hægri), Arnar Ólafsson (neðst til vinstri), Anný Hermannsdóttir (neðst til hægri), Ragnheiður Lilja Guðmundsdóttir (litla myndin neðst í hægra horninu).