© Getty Images (Getty)
Töluverður vöxtur var í einkaneyslu á öðrum fjórðungi ársins samkvæmt tölum um greiðslumiðlun. Nýjustu tölur benda til þess að vöxturinn hafi ekki verið jafn hraður frá því fyrir hrun. Í hagtölum Seðlabanka Íslands um greiðslumiðlun sem birtar voru í gær kemur fram að kreditkortavelta í júní nam alls 29,1 milljörðum króna, sem jafngildir tæplega 6% aukningu að raungildi milli ára. Líkt og undanfarið var aukningin mun meiri í erlendri kreditkortaveltu, tæplega 19%, meðan innlend kreditkortavelta jókst að raungildi um 3% á milli ára. Aukning innlendrar veltu milli ára var sú minnsta að raungildi frá febrúarmánuði 2011. Þykir það athyglisvert í ljósi þess að landsmenn hefa væntanlega séð fram á rýmri fjárráð í júní eftir nýgerða kjarasamninga, er fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka.

"Samantekin raunaukning kreditkortaveltu og innlendrar debetkortaveltu einstaklinga gefur góða mynd af þróun einkaneyslu. Einföld aðhvarfsgreining bendir þannig til að einkaneysla hafi aukist um 5 - 7% að raungildi á öðrum fjórðungi ársins frá sama tímabili í fyrra. Ef rétt reynist er það hraðasta aukning einkaneyslu frá því á 1. fjórðungi ársins 2008, þegar hún reyndist 7,9% samkvæmt tölum Hagstofu. Einkaneysla óx um 1,5% á 1. fjórðungi yfirstandandi árs frá sama tíma í fyrra, og benda því framangreindar tölur til þess að vöxtur einkaneyslu á fyrri helmingi ársins hafi verið á bilinu 3 -  4%," segir í Morgunkorninu.