Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal hlaut forvarnarverðlaun Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) fyrir árið 2012. Tryggingamiðstöðin hefur veitt forvarnarverðlaunin Varbergið frá árinu 1999 en þau eru veitt þeim fyrirtækjum sem þótt hafa skara fram úr á sviði forvarna gegn óhöppum og slysum.

Í tilkynningu frá TM er haft eftir Einari Val Kristjánssyni, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal, að starfsfólkið sé lykillinn að viðurkenningunni. Einar veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Sigurðar Viðarssonar, forstjóra Tryggingamiðstöðvarinnar, í hádegishléi starfsmanna í dag.

Einar Valur segir:

„Lykillinn hjá okkur er fyrst og fremst lítil starfsmannavelta. Okkar starfsmenn halda vel utan um hlutina og hvern annan, t.d. eru þetta mikið til sömu mennirnir á skipunum okkar. Þetta er klapp á bakið og segir okkur að við séum að gera rétt.“
Um Hraðfrystihúsið Gunnvöru segja sérfræðingar TM í forvörnum að fyrirtækið búi að öflugri liðsheild starfsmanna sem leggja grunninn að því að öllum framleiðslu, gæða- og öryggisstuðlum sé fullnægt. Að mati sérfræðinga TM er öryggishegðun mjög sterk innan HG, því fyrirtækið hefur lent í fáum slysum. Öryggisvitund og forvarnir skili árangri sem um munar, sem felist í fækkun slysa og veikinda.