Hrafn Gunnarsson, hugmynda- og hönnunarstjóri hjá auglýsingastofunni Brandenburg, hefur verið valinn á lista Adweek yfir 100 mest skapandi einstaklinga ársins 2021. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brandenburg.

Ár hvert setja sérfræðingar á vegum Adweek saman lista með 100 einstaklingum sem þóttu skara fram úr á árinu, bæði fagfólk í auglýsingageiranum sem og áhrifafólk sem hefur látið til sín taka með eftirtektarverðum hætti. Meðal þeirra sem má finna á listanum með Hrafni eru handritshöfundurinn, leikstjórinn og leikkonan Michaela Coel, leikarinn Dwayne 'The Rock' Johnson, rapparinn Lil Nas X og aðgerðasinninn og skáldið Amanda Gorman.

Í umsögn voru það einkum tvö verkefni sem vöktu athygli Adweek á Hrafni. Herferðin Fishmas sem unnin var fyrir Íslandsstofu og svo ný ásýnd og endurmörkun Knattspyrnusambands Íslands en bæði verkefni vann Hrafn með samstarfsfólki sínu á Brandenburg. Hið síðarnefnda var einmitt á lista Adweek yfir 25 bestu auglýsingaverkefni ársins 2020 og var þar í flokki með vörumerkjum á borð við Doritos, Burger King, Apple og Nike.

Stoltur fyrir hönd stofunnar

Hrafn er að vonum stoltur að sjá nafn sitt á listanum. „Það er óhætt að segja að þetta hafi komið á óvart. Þarna eru einstaklingar sem maður hefur lengi fylgst með og ber mikla virðingu fyrir, bæði í faginu og utan þess. Maður verður auðmjúkur að vera nefndur í sömu andrá. Enda lít ég fyrst og fremst á þetta sem sameiginlega viðurkenningu fyrir mig og mitt magnaða samstarfsfólk á Brandenburg. Við eigum þetta öll saman,"  segir Hrafn í tilkynningunni.

Hrafn hefur starfað sem grafískur hönnuður síðan 2006 og er einn eigenda Brandenburgar. Hjá Brandenburg starfa rúmlega 30 sérfræðingar á sviði hönnunar, vörumerkjaráðgjafar, hugmyndavinnu og textagerðar auk þess að sjá um birtingar, kaup og ráðgjöf gegnum snjallbirtingafyrirtækið Datera.