Ingvi Hrafn Jónsson, fjölmiðlamaður hyggst senda út Hrafnaþing á Facebook en þetta kemur fram í uppfærslu frá honum á samfélagsmiðlinum. Hann segist jafnframt leita útsendingarbúnaðar sem nota megi í daglegar sendingar.

Viðskiptablaðið greindi frá því í lok nóvember að ÍNN hefði verði tekið til gjaldþrotaskipta en svo virðist sem ekki eigi að stofna stöðin að nýju. Hér að neðan má lesa stöðuuppfærslu Ingva Hrafns í heilu lagi.

„Kæru vinir,stuðningsmenn og aðrir.Hrafnaþing byrjar enn einn kaflann í 15 ára sögu,sem byrjaði hjá Norðurljósum á Krókhálsi,endur fyrir löngu.Er að byrja að leita að útsendingarbúnaði fyrir daglegar sendingar hér á Fébókinni.Þakka hamafaraflóð af stuðningsyfirlýsingum og læt ykkur fylgjast með framvindunni. Vinsamlegast deilið og látið berast um Íslandsbyggð alla.“