Kauphöll Íslands hefur samþykkt fram komna beiðni um afskráningu hlutabréfa Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf. af Aðallista Kauphallarinnar. Símatún ehf. hefur eftir yfirtökutilboð eignast 97,69% af heildarhlutafé félagsins. Félagið uppfyllir því ekki skilyrði skráningar um dreifingu hlutafjár. Félagið verður afskráð eftir lokun viðskipta í dag 11. mars 2005 með vísan til ákvæðis 7.5.2 í reglum fyrir útgefendur verðbréfa í Kauphöll Íslands.