Gengið hefur verið frá samningi um kaup Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf. á nóta og togveiðiskipinu Júpiter II FD-235 ásamt veiðarfærum af P/F Driftin í Færeyjum. Kaupverð er trúnaðarmál og eru kaupin að mestu fjármögnuð með langtímaláni. Skipið verður afhent félaginu innan skamms. Kaup þessi munu styrkja rekstur félagsins og nýta betur þær aflaheimildir sem það hefur yfir að ráða.