Hrannar Hafsteinsson hefur nú verið ráðinn tæknistjóri ráðstefnu- og tónlistarhússins Hörpu. Hann hefur mikla reynslu bæði sem verkefnastjóri og tæknistjóri á tónleikum, fundum og ráðstefnum, hérlendis og erlendis.

Fram kemur í tilkynningu að Hrannar hefur síðastliðin tvö ár starfað sem verkefnastjóri tæknideildar Icelandair hótelanna.

Hann hóf stórf í Hörpu í gær.