Hráolíufatið fór niður fyrir 60 Bandaríkjadali í viðskiptum á New York Mercantile Exchange í gær, í kjölfar þess að dregið var úr spám um veðurfyrirbrigðið El Nino.

Hráolíufatið lækkaði um 2,04 Bandaríkjadali niður í 58,99 dali á fat, en olíuverð hefur ekki verið lægra í sjö mánuði.