Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri eignastýringar og miðlunar Landsbankans, hefur sagt starfi sínu lausu hjá bankanum sem hún hefur gegnt frá árinu 2010. Hún hefur þegar látið af störfum, að því er kemur fram í tilkynningu bankans.

„Ég kveð nú Landsbankann með stolti eftir ellefu ánægjuleg og viðburðarík ár. Hér hef ég öðlast mikla reynslu og fengið tækifæri til að vinna með einstaklega öflugu fólki að krefjandi verkefnum,“ er haft eftir Hrefnu Ösp.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að Hrefna Ösp sé kraftmikill stjórnandi sem hafi náð miklum árangri og verið framúrskarandi liðsmaður í framkvæmdastjórn bankans.

„Hrefna Ösp hefur unnið frábært starf fyrir Landsbankann. Hún stýrði enduruppbyggingu eignastýringar bankans og studdi við uppbyggingu Landsbréfa. Hrefna Ösp hefur verið brautryðjandi á Íslandi í sjálfbærni og ábyrgum fjárfestingum. Hún var drifkrafturinn í stofnun IcelandSIF og hreif markaðinn með sér í nýrri hugsun,“ er haft eftir Lilju Björk.