Hrefna Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá. Hún hefur mikla  reynslu og þekkingu af forvarnastarfi. Hrefna hefur starfað sem framkvæmdastjóri Heimilis og skóla – landsamtaka foreldra síðustu 10 árin, þar til hún hóf störf hjá Sjóvá nú um miðjan febrúar. Áður var hún verkefnastjóri hjá samtökunum og SAFT verkefninu. Þar áður starfaði hún meðal annars sem blaðamaður hjá Fréttablaðinu og kennari við Hofsstaðaskóla.

Hrefna er með meistarapróf í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands, kennsluréttindi á grunn- og framhaldsskólastigi og BA-próf í sálfræði frá sama skóla. Hún hefur setið í varastjórn Almannaheilla frá árinu 2019 og sat í stjórn Námsgagnastofnunar á árunum 2012 til 2015. Hún hefur einnig átt sæti í ýmsum nefndum og samstarfshópum, innlendum sem erlendum, í tengslum við fyrri störf.

„Sjóvá hefur unnið að forvörnum með virkum hætti í gegnum tíðina og höfum við mikinn metnað til að efla það starf enn frekar. Það eru fjölmörg tækifæri til að auka öryggi fólks og efla forvarnir áfram í samfélaginu og hlakka ég til að vinna að þeim verkefnum sem framundan eru“, er haft eftir Hrefnu í fréttatilkynningu.

Hrefna er gift Þorgeiri Ragnarssyni, sagnfræðingi og ráðgjafa hjá Menntasjóði námsmanna, og eiga þau tvö börn.