Kaupþing hefur selt eigin hlutabréf á genginu 303, samkvæmt tilkynningu sem birtist í Kauphöllinni í dag. Gengi bankans var 1.039 krónur á hlut við lok markaðar.

Um er að ræða 1.624.000 hluti, sem er um 1,7 milljarðar að markaðsvirði en 492 milljónir króna að kaupvirði.

Hlutirnir voru seldir til Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra og Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns í tengslum við nýtingu þeirra á kauprétti, en tilkynning barst um það 22. mars 2007.