Embætti sérstaks saksóknara hefur handtekið Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum forstjóri Kaupþings, og farið fram á tveggja vikna gæsluvarðahalds yfir honum, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Hreiðar Már er grunaður um margskonar brot, meðal annars auðgunarbrot og markaðsmisnotkun.

Sérstakur saksóknari sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu þar sem hann segir að einn sakborningur í málum tengdum Kaupþingi hefði verið handtekinn í dag. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að sakborningurinn sé Hreiðar Már.

Fréttatilkynning sérstaks saksóknara:

Í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málum er tengjast Kaupþingi var einn sakborningur handtekinn fyrr í dag í lok skýrslutöku sem hófst í morgun. Farið var fram á gæsluvarðhald fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í kjölfarið til að tryggja rannsóknarhagsmuni. Til rannsóknar eru m.a. grunur um skjalabrot skv. 17. kafla almennra hegningarlaga, auðgunarbrot skv. 26. kafla almennra hegningarlaga,  brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti þ.m.t. markaðsmisnotkun og loks brot gegn hlutafélagalögum. Til grundvallar rannsókninni eru kærur frá Fjármálaeftirlitinu og önnur gögn.

Héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur ákvað að taka sér lögmæltan frest til uppkvaðningar úrskurðar.