Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi vegna aðildar sinnar að Al Thani-málinu. Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður bankans hlaut fimm ára dóm, Ólafur Ólafsson hlaut þriggja og hálfs árs dóm og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg, þriggja ára dóm. Enginn sakborninga mætti við dómsuppsögu í málinu. Verjendur allra voru þar nema Karl Axelsson, verjandi Magnúsar. Fulltrúi mætti í hans stað.

Saksóknari krafðist sex ára fangelsisdóms yfir Sigurði og Hreiðari Má en fjögurra ára fangelsis yfir Magnúsi og Ólafi en þeir eru ákærðir fyrir hlutdeild í meintum brotum Hreiðars og Sigurðar.

Málið er eitt það umsvifamesta sem embætti sérstak saksóknara hefur staðið í. Sakborningar eru þeir Sigurður Einarsson, fyrrverandi starfandi stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, fjárfestirinn Ólafur Ólafsson, sem var einn af stærstu einstöku hluthöfum bankans, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg. Málið snýst um 50 milljóna dala lán sem Kaupþing veitti vegna kaupa Al Thani á 5% hlut í Kaupþingi í september 2008. Lánið var veitt til félagsins Brooks Trading Ltd. til móts við framtíðarávinning sem gæti skapast vegna kaupa félagsins á lánshæfistengdu skuldabréfi, sem gefið var út af Kaupþingi. Lánið var veitt án persónulegrar ábyrgðar Al-Thani.

Sérstakur saksóknari telur að um sýndarviðskipti hafi verið að ræða Á þeim grundvelli ákærði hann fjórmenningana í málinu. Þeir eru ákærðir fyrir umboðssvik vegna ólöglegra lánveitinga og markaðsmisnotkun fyrir að gefa rangar upplýsingar um stöðu bankans.

Upphaflega stóð til að réttarhöldin færu fram í apríl en dómari frestaði þeim þegar Gestur Jónsson, sem var verjandi Sigurðar, og Ragnar Hall, sem var lögmaður Ólafs, báðust lausnar frá málinu. Aðalmeðferð hófst í málinu í nóvember síðastliðnum.