Gildi-lífeyrissjóður hefur gengið frá milliuppgjöri fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2006. Hrein raunávöxtun sjóðsins á ársgrundvelli fyrstu sex mánuði ársins var 6,7% og nafnávöxtun 18,3%.

Fjárfestingartekjur á tímabilinu námu 15,7 milljörðum króna og hækkuðu um 2,8 milljarða á milli ára. Mikill óróleiki á verðbréfamörkuðum einkenndi fyrri helming ársins. Ágæt ávöxtun var á erlendri verðbréfaeign sjóðsins sem og skuldabréfasafni, en innlend hlutabréf sjóðsins lækkuðu lítilsháttar á tímabilinu.

Iðgjöld til sjóðsins voru 3,8 milljarðar króna fyrstu 6 mánuði ársins og hækkuðu um 18% frá fyrra ári. Greiddur lífeyrir nam 2,3 milljörðum og hækkaði um 19% á milli ára.

Hrein eign Gildis til greiðslu lífeyris nam 198,5 milljörðum króna í lok júní 2006 og hefur hækkað um 17,2 milljarða frá ársbyrjun. Eignir sjóðsins skiptast þannig að 51% er í innlendum skuldabréfum, 21% í innlendum hlutabréfum og 28% í erlendum verðbréfum.

Gildi-lífeyrissjóður er þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins.