Heimilin eiga um 5.463 milljarða króna í búðahúsnæði, lífeyrissjóðum og innlánum hjá bönkunum. Þetta er um 43 milljónir króna á hvert heimili í landinu eða um 353% af landsframleiðslu, að því er kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka. Við þessa upphæð bætist bifreiðaeign o g bein eign í verðbréfum en tölur yfir það eru ekki tiltækar.

© BIG (VB MYND/BIG)
Skuldsetning heimilanna eru umtalsverðar á móti þessi eignum eða um 110% af landsframleiðslu. Er skuldahlutfall þetta nokkuð hátt í alþjóðlegum samanburði en skýrist það m.a. af því að hlutfall heimila í eigin húsnæði hér á landi er með því hæsta sem gerist í heiminum. Þá skulduðu heimilin innlánsstofnunum 517 milljarða króna í lok apríl síðasliðin samkvæmt hagtölum Seðlabankans. Útlánin eru metin á því virði sem Arion banki, Íslandsbanki og NBI keyptu lánasöfnin á af fyrirrennurum sínum.

Þá skulduðu heimilin öðrum lánastofnunum 691 milljarða króna í lok apríl en með í þessari tölu eru skuldir heimilanna við Íbúðalánasjóð. Skuld heimilanna við lífeyrissjóðina var síðan 174 milljarða króna í lok apríl. Skulda heimilin þessum aðilum samanlagt 1.382 milljarða króna. Til viðbótar við þetta er skuld heimilanna við Lánasjóð íslenskra námsmanna og tryggingafélög.

Þá segir í fréttinni að hrein eign heimilanna í landinu losar 240% af landsframleiðslu eða 3.700 milljarða króna. Er þetta umtalsverð eign sem stendur þrátt fyrir hrun bankakerfisins og efnahagskreppu.