Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.744 milljarðar króna í lok október sl. og hækkaði um 9,6 milljarða í mánuðinum.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en þar segir að sé miðað við október 2008 hefur hrein eign hækkað um 190,5 milljarða króna eða 12,3 %.

Að sögn Seðlabankans skýrist sú hækkun af stærstum hluta af þeim miklu sviptingum sem áttu sér stað á íslenskum fjármálamörkuðum í október 2008. Sú breyting hefur átt sér stað að afleiðusamningar sem áður hafa verið undir liðnum aðrar eignir, eru nú sýndir í liðnum afleiðusamningar.

Vert er að taka fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna