Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.716 milljarðar króna í lok maí sl. og hækkaði um 22 milljarða í mánuðinum.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en sé miðað við maí 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 84,8  milljarða króna eða 4,7%.

Sú lækkun skýrist af stærstum hluta af þeim miklu sviptingum sem áttu sér stað á íslenskum fjármálamörkuðum í október 2008. Í hagtölum Seðlabankans er tekið fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.