Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.734 milljarðar króna í lok september sl. og hækkaði um 26,1 milljarð í mánuðinum.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en sé miðað við september 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 36,4 milljarða eða 2,2 %. Seðlabankinn segir að sú lækkun skýrist af stærstum hluta af þeim miklu sviptingum sem áttu sér stað á íslenskum fjármálamörkuðum í október 2008.

„Sú breyting hefur átt sér stað að afleiðusamningar sem áður hafa verið undir liðnum aðrar eignir, eru nú sýndir í liðnum afleiðusamningar. Vert er að taka fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna,“ segir á vef Seðlabankans.