Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.694 milljarðar króna í lok apríl sl. og hafði hækkað um 42,3 milljarða í mánuðinum.

Þetta kemur fram í Hagtíðindum Seðlabankans en sé miðað við apríl 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 80,2 milljarða króna eða 4,5%. Sú lækkun skýrist af stærstum hluta af þeim miklu sviptingum sem áttu sér stað á íslenskum fjármálamörkuðum í október 2008.

Í Hagtíðindum er þó tekið fram að en enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.