Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.762 milljarðar króna í lok júlí sl. og hækkaði um 25,5 milljarða í mánuðinum.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Sé miðað við júlí 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 29,1 milljarð króna eða 1,6 %. Sú lækkun skýrist af stærstum hluta af þeim miklu sviptingum sem áttu sér stað á íslenskum fjármálamörkuðum í október 2008.

Seðlabankinn tekur þó fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.