Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.779 milljarða króna í lok ágúst sl. og hækkaði um 45,9 milljarða í mánuðinum.

Sé miðað við ágúst 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 44,6 milljarða króna eða 2,4 %.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en þar segir að sú lækkun sem um ræðir skýrist af stærstum hluta af þeim miklu sviptingum sem áttu sér stað á íslenskum fjármálamörkuðum í október 2008. Vert er að taka fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna