Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.615 milljarðar króna í lok janúar sl. og hafði lækkað um 29 milljarða króna í mánuðinum. Sé miðað við janúar mánuð 2008 hefur hrein eign lækkað um 42 milljarða króna eða 2,5%.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en þar kemur fram að þessi lækkun skýrist af stærstum hluta af þeim miklu sviptingum sem áttu sér stað á íslenskum fjármálamörkuðum í október 2008.

Fram kemur að frá lok október hefur lækkun á hreinni eign lífeyrissjóðanna mátt rekja til breytinga á erlendum eignum sjóðanna. Þá er enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.