Hrein eign lífeyrissjóða nam 2.474 milljörðum króna í lok mars 2013 sem er rúmlega 29 milljarða hækkun frá fyrri mánuði eða 1,2%. Þar af nam eign samtryggingardeilda lífeyrissjóða 2.229 milljörðum króna á móti 245 milljarða eign séreignardeilda. Kemur þetta fram í tölum Seðlabanka Íslands.

Innlend verðbréfaeign lífeyrissjóða nam 1.775 milljörðum króna í lok mars og hækkaði um tæpa 27 milljarða milli mánaða eða 1,5%. Hækkunin skýrist aðallega af tæplega 25 milljarða króna hækkun á eign lífeyrissjóðanna á skuldabréfum og rúmlega 3 milljarða hækkun á eign þeirra á hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum.

Erlend verðbréfaeign lífeyrissjóða nam 559 milljörðum í lok mars og hækkaði um tæpa 2 milljarða króna frá fyrri mánuði eða um 0,3%.