Hrein eign lífeyrissjóða nam 2.434 milljörðum króna í lok janúar 2013 og hafði þar með aukist um 40 milljarða króna frá árslokum 2012, eða um 1,7%, að því er segir í frétt á vef Seðlabankans .

Þar af var eign lífeyrissjóða í samtryggingardeildum 2.192 milljarðar á móti 242 milljörðum í séreignardeildum. Innlend verðbréfaeign lífeyrissjóða nam 1.730 milljörðum króna í lok janúar og hafði þá aukist um tæpa 27 milljarða á milli mánaða. Erlend verðbréfaeign nam 563 milljörðum og hafði þar með hækkað um rúma 13 milljarða króna frá fyrri mánuði.

Seðlabankinn tekur fram að ekki liggur fyrir endanlegt uppgjör sjóðanna og því sé um að ræða bráðabirgðatölur sem geti tekið breytingum.