Fyrir helgi var úthlutað veiðileyfum vegna hreindýraveiða á Austurlandi næsta sumar. Í boði voru 800 veiðileyfi en alls bárust 1.600 umsóknir sem er óvenju mikill fjöldi. Mest er ásóknin í leyfi á svæðum 1 og 2, á Fljótsdalsheiði, en á velflestum svæðum er fjöldi umsækjenda vel yfir leyfum sem í boði eru.

Byggt á frétt á heimasíðu Bændasamtakanna.