Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað Hrein Haraldsson vegamálastjóra en skipað er í embættið til fimm ára.

Þetta kemur fram á vef samgönguráðuneytisins en embætti vegamálastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Hreinn var eini umsækjandinn. Samgönguráðherra afhenti Hreini skipunarbréf í dag á skrifstofu ráðuneytisins.

Vegamálastjóri veitir Vegagerðinni forstöðu. Helstu verkefni Vegagerðarinnar skiptast í framkvæmdir í vegamálum, umsjón með rannsóknum og þróun á sviði vegamála auk stjórnsýslu og eftirlits.