Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr hf., hefur sagt sig úr varastjórn Kaupþings banka hf. frá og með deginum í dag. Úrsögnin er í samræmi við skilmála íslenska ríkisins fyrir þátttöku bankans í kaupum á hlutafé þess í Landssíma Íslands hf.