Félag í eigu Hreins Loftssonar og barna Péturs Björnssonar í Vífilfelli, Bagu, er kaupandi Birtíngs af Stoðum Invest. Stoðir Invest eru í meirihlutaeigu Gaums, félags Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu hans, en Bagu átti 10% hlut í Stoðum Invest. Vísir.is greinir frá þessu í kvöld.

Hreinn er stjórnarmaður í Baugi og á að sama skapi hlut í félaginu.