Hreinn Þór Hauksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ÍV sjóða hf. Hann tekur við starfinu af Jóhanni Steinari Jóhannssyni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍV sjóðum.

Hreinn Þór hefur lengi starfað á innlendum fjármálamarkaði. Frá upphafi árs 2017 hefur hann starfað við sérhæfðar fjárfestingar hjá Íslenskum verðbréfum en þar áður starfaði hann til rúmlega tveggja ára innan ÍV sjóða sem sjóðstjóri fagfjárfestasjóða. Hann er félaginu því vel kunnugur. Hreinn Þór hefur starfað við atvinnuþróun hjá Akureyrarbæ 2012-2014, en lengst af frá árinu 2005 starfaði hann sem sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Íslandsbanka/Glitni banka.

Hreinn Þór er með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Lunds Universitet og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Kolbeinn Friðriksson, formaður stjórnar ÍV sjóða; „Það er mikill fengur fyrir ÍV sjóði að fá Hrein Þór til baka til félagsins til að halda áfram því góða og öfluga starfi sem þar hefur verið unnið undanfarin ár. Félagið er nú sem endranær vel í stakk búið til að bregðast við örri þróun á mörkuðum og nýta tækifæri sem gefast. Stjórn félagsins vill þakka Jóhanni Steinari fyrir vel unnin störf og koma á framfæri óskum um velfarnað í nýju starfi.“