Fjarskiptafyrirtækið Hringdu hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna lögbanns sem Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur lagt á fyrirtækið vegna aðgengi viðskiptavina þess að vefsíðum Deildu.net og PirateBay.

Í fréttatilkynningunni segir að Hringdu hafi frá upphafi málsins mótmælt kröfum STEF, enda telji fyrirtækið það ekki hlutverk fjarskiptafyrirtækja að ritskoða netumferð viðskiptavina sinna og hafi meðal annars bent á í málsvörn sinni að aðgangur að veraldarvefnum væri skilgreindur sem grundvallarmannréttindi í tilskipun frá Evrópusambandinu.

Segir jafnframt að réttast hefði verið af STEF að beina lögbannskröfum sínum að rekstraraðilum ThePirateBay og Deildu.net í stað Hringdu og annarra fjarskiptafyrirtækja. Á það hafi einnig verið bent að margar aðrar sambærilegar vefsíður séu starfandi sem ekki var krafist lögbanns á og að öllum mögulegum hindrunum yrði auðvelt að komast framhjá.

„Að okkar mati er þetta lögbann algjörlega tilhæfislaust og í raun beiðni um ritskoðun á internetinu. Niðurstaðan er íslenskum neytendum verulegt áhyggjuefni og gæti gefið fordæmi fyrir frekari ritskoðun internetsins,“ segir Kristinn Pétursson, forstöðumaður sölu- og þjónustusviðs Hringdu.

„Við teljum mikilvægt að höfundarréttur sé virtur en þetta er ekki rétta leiðin. Áætlað er að 20.000 heimili kaupi sér áskrift að Netflix og að hátt í 8.000 einstaklingar séu með áskrift að Spotify. Það segir okkur að Íslendingar vilja greiða fyrir afþreyingu. Á endanum snýst þetta allt um aðgengi,“ segir Kristinn.