Hringdu hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum upp á ótakmarkað gagnamagn á öllum nettengingum sínum frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Fjarskiptafyrirtækið hóf sölu á ADSL tengingum með ótakmörkuðu gagnamagni síðasta sumar en mun nú einnig hefja sölu á ljósneti og ljósleiðara með ótakmörkuðu gagnamagni.

Hringiðan hefur einnig boðið upp á þessa þjónustu frá 1. janúar síðastliðnum.

Með ótakmörkuðu gagnamagni þurfa notendur ekki að velta fyrir sér hvaðan eða hversu mikið af gögnum eru sótt eða send. Greitt er fast verð án aukagjalda.

„Á meðan helstu samkeppnisaðilar okkar eru byrjaðir að telja allt gagnamagn höfum við ákveðið að hætta því. Við fetum þannig í fótspor frænda okkar á Norðurlöndunum sem lengi hafa selt hraða fram yfir gagnamagn,“ segir Kristinn Pétursson, forstöðumaður sölu- og þjónustusviðs Hringdu.