Hrólfur Andri Tómasson hefur hafið störf hjá GAMMA Capital Management, en hann mun starfa sem verkefnastjóri við sérhæfðar fjárfestingar hjá fyrirtækinu.

Hrólfur hefur áður starfað hjá Arctica Finance við fyrirtækjaráðgjöf, hjá Blackstone Group við greiningu á fjárfestingarkostum og hjá nýsköpunarsjóðnum Octopus Investments í London.

Hrólfur er með B.S. gráðu í vélaverkfræði frá HÍ og MBA frá London Business School.