Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar sem birtist í Kjarnanum í morgun um að Framsóknarflokkurinn hefði sóst eftir því að eignast hlut í DV.

Fram kom í frétt Kjarnans að Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri mjólkurbúsins Kú og fyrrum stjórnarformaður DV, héldi því fram að Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, hefði þrívegis fundað með sér undir því yfirskini að menn tengdir Framsóknarflokknum vildu kaupa DV. Þetta hafi gerst á þeim tíma sem Ólafur var stjórnarformaður DV.

Hrólfur segir í yfirlýsingunni að hvorki hann fyrir hönd flokksins, né Framsóknarflokkurinn, hafi farið þessa á leit og fullyrðingar Ólafs um málið séu rangar. Ólafur hafi nokkrum sinnum komið á hans fund til að ræða ýmis persónuleg málefni, bæði fjárhagsleg og önnur. Aldrei hafi verið einu orði minnst á að Framsóknarflokkurinn hefði hug á að eignast hlut í blaðinu. Ólafur hafi hins vegar haft orð á því að fyrra bragði að DV væri í fjárþröng og þyrfti á auknu hlutafé að halda.