Hrólfur Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri vörusviðs Office1 á Íslandi. Hrólfur var innkaupastjóri hjá Árdegi hf.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Verslanir Office1 eru í dag 8 talsins og starfa rúmlega 80 starfsmenn hjá fyrirtækinu, bæði í verslunum og fyrirtækjasölu.

Hrólfur segir tækifæri vera á þessum markaði.

„Það virðist stefna í talsverða fjölgun í framhalds- og háskólum landsins í haust þannig að okkar markaður er að stækka um leið og sala til fyrirtækja hefur aukist. Stjórnendur eru meðvitaðir um að hagstæð innkaup á rekstrarvörum leiða að sjálfsögðu til lægri rekstrarkostnaðar.“ segir Hrólfur í tilkynningunni.

Hrólfur er í sambúð með Ragnhildi Jóhannsdóttur og eiga þau tvö börn.