Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað doktor Hrönn Jörundsdóttur í embætti forstjóra Matvælastofnunar. Hrönn hefur störf 1.ágúst næstkomandi. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Hrönn er með BS gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og lauk MS-prófi í umhverfisefnafræði árið 2002 frá Stokkhólmsháskóla. Árið 2009 lauk hún einnig doktorsgráðu í umhverfisefnafræði frá Stokkhólmsháskóla og hefur unnið hjá MATÍS undanfarin 11 ár. Frá árinu 2016 hefur hún verið stjórnandi hjá MATÍS  þar sem hún hefur stýrt fjölmörgum innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum, stefnumótun, rekstri og ráðgjafarverkefnum. Einnig hefur Hrönn verið formaður áhættumatsnefndar á sviði matvæla, fóðurs, áburðar og sáðvöru frá árinu 2019. Hún hefur ennfremur sérhæft sig á sviði matvælaöryggis, áhættumats og áhættumiðlunar.

Alls bárust átján umsóknir um starf forstjóra Matvælastofnunar, en umsóknarfrestur rann út þann 4. maí 2020 og mat hæfn­is­nefnd fimm umsækj­endur vel hæfa til þess að gegna því. Í kjöl­farið boð­aði ráð­herra þá í við­tal þar sem ítar­lega var farið ofan í ein­staka þætti starfs­ins og sýn umsækj­enda.

Var það mat ráð­herra, að Hrönn Jörundsdóttir væri hæfust umsækj­enda til að stýra Matvælastofnun til næstu fimm ára.

Umsækjendur um stöðuna voru:

  • Björg­vin Jó­hann­es­son, markaðs- og fjár­mála­stjóri
  • Björn H. Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri
  • Eg­ill Stein­gríms­son, yf­ir­dýra­lækn­ir
  • Elsa Ingj­alds­dótt­ir, gæða- og mannauðsstjóri
  • Helga R. Eyj­ólfs­dótt­ir, for­stöðumaður
  • Hild­ur Krist­ins­dótt­ir, gæðastjóri
  • Hlyn­ur Sig­urðsson, fram­kvæmda­stjóri
  • Dr. Hrönn Jör­unds­dótt­ir, sviðsstjóri
  • Dr. Ing­unn Björns­dótt­ir, dós­ent og nám­svist­un­ar­stjóri
  • Jón Kol­beinn Jóns­son, héraðsdýra­lækn­ir
  • Sig­ur­borg Daðadótt­ir, yf­ir­dýra­lækn­ir
  • Sig­urður Ey­berg Jó­hanns­son, verk­efn­is­stjóri
  • Svavar Hall­dórs­son, sjálf­stætt starf­andi ráðgjafi og há­skóla­kenn­ari
  • Dr. Sveinn Mar­geirs­son, sjálfs­stætt starf­andi ráðgjafi
  • Sverr­ir Sig­ur­jóns­son, lögmaður
  • Valdi­mar Björns­son, fjár­mála­stjóri
  • Vikt­or S. Páls­son, sviðsstjóri
  • Þor­vald­ur H. Þórðar­son, sviðsstjóri