Hrönn Greipsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Hún tekur við stöðunni af Huld Magnúsdóttur, sem lætur af störfum að eigin ósk um næstu mánaðamót.

Hrönn hefur frá árinu 2015 stýrt fjárfestingafélaginu Eldey, sem fjárfesti í afþreyingartengdri ferðaþjónustu og var í stýringu hjá Íslandssjóðum. Eignasafn Eldeyjar var selt Kynnisferðum í árslok 2020 og var starfsemin sameinuð um mitt síðasta ár.

Áður starfaði Hrönn sem forstöðumaður hjá Arion banka og framkvæmdastjóri hjá SPRON. Þá var hún um tíma framkvæmdastjóri Hótels Sögu ehf., sem rak Hótel Sögu og Hótel Ísland.

Hrönn situr í stjórnum átta fyrirtækja á vettvangi ferðaþjónustu, ýmist sem stjórnarmaður eða formaður. Þeirra á meðal eru Kynnisferðir og Reykjavík Excursion, Basecamp Iceland, Íslenskar heilsulindir og Norðursigling.

Hrönn er viðskiptafræðingur að mennt með MBA gráðu í fjármálum auk prófs í verðbréfamiðlun.

Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs:

„Það er fengur fyrir Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins að fá Hrönn Greipsdóttur til starfa. Hún hefur mikla reynslu og þekkingu af fjárfestingum og rekstri fyrirtækja sem mun nýtast sjóðnum sem og nýsköpunarumhverfinu á Íslandi vel. Sjóðurinn gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífinu og hefur á síðasta aldarfjórðungi stutt við fjölmörg fyrirtæki, skapað störf og verðmæti. Ég býð Hrönn velkomna til starfa og þakka fráfarandi framkvæmdastjóra, Huld Magnúsdóttur, fyrir góð störf í þágu NSA og nýsköpunar á Íslandi undanfarin ár.“

Hrönn Greipsdóttir :

„Ég er full tilhlökkunar að takast á við spennandi og krefjandi verkefni í nýsköpunarumhverfinu, þar sem svo mikil gróska ríkir um þessar mundir. Vonandi nýtist reynsla mín og þekking vel til góðra verka á þessum vettvangi hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.“

Huld Magnúsdóttir:

„Tíminn hjá sjóðnum hefur verið bæði áhugaverður og gefandi og ég er mjög þakklát fyrir samstarfið við starfsfólk, stjórn, ráðuneyti og þau öflugu félög sem tilheyra eignasafni Nýsköpunarsjóðs. Ég óska þeim öllum góðs gengis í framtíðinni sem ég tel að sé björt í íslensku nýsköpunarumhverfi,” segir Huld sem tók við starfi framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs vorið 2017.“